Æfingar út maí
Sælir allir
.. takk fyrir mætinguna á Vorhátíðina. Þið eruð flottastir!
Æfingar halda áfram út maí mánuð og svo er komið sumarfrí.
Maí æfingar verða í Dalhúsum
kl. 15:00, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga.
Fjölniskveðja
Sveinn og Siggi
Maí æfingarnar! UPPFÆRT
Næsta FIMMTUDAG verður æfingin í RIMASKÓLA – ÚTI – mætið klæddir eftir veðri.
Æfingin er úti því Dalhús eru lokuð vegna uppstigningardags.
mbk
Sveinn og Siggi.
Sælir allir,
Ég vona að sem flesir ætli að æfa í maí, því æfingarnar verða skemmtilegar og lærdómsríkar fyrir okkur.
ÆFINGATÍMARNIR Í MAÍ verða svona
Þriðjudagur – kl. 15:00 – DALHÚS
Fimmtudagur kl. 15:00 – DALHÚS
Föstudagur kl. 15:00 – DALHÚS
Ef þið lendið í vandræðum með skráningar, hafið þá samband við Fríðu (frida@fjolnir.is) á skrifstofunni, eða Gumma (gummi@fjolnir.is)
ps. sjáumst í sjónvarpinu á mánudaginn… og á æfingu á þriðjudaginn!
mbk
Sveinn og Siggi
Sumarnámskeiðið – MAÍ æfingar
Sæl öll,
Handbolta árið er of stutt finnst okkur (æfingagjöld og ÍTR styrkir eru aðeins 8 mánuðir) og því viljum við lengja tímabilið út maí mánuð. Við viljum hvetja alla til að taka þátt í þessu. Æfingarnar verða byggðar upp með tækni og spiláherslum og fara fram í Dalhúsum. Strákarnir hafa svo sannarlega gott af því að æfa meira og bæta sig enn meir
Þetta ætti að birtast ykkur svona… “6. flokkur karla KK – Sumaræfingar 01.0513-31.05.13″
Ef þið lendið í miklum vandræðum, hafið þá endilega samband við Fríðu (frida@fjolnir.is) og í síma 578 2700
Góð skráning er forsenda þess að við getum haldið úti þjálfara í þetta námskeið.
mbk
Sveinn og Siggi
Kostnaður vegna Eyja
Sæl öll,
Ég vil fá sendan póst vegna kostnaðar fararstjóra við Eyjar.
Þar þurfa að koma fram reikningsnúmer og kt. ásamt yfirliti yfir það sem endurgreiða á (ath bensín fast í 5000 kr, nema þeir sem keyrðu til Landeyja frá Þorlák á sunnudegi)
á SVEINN@BHS.is
Í framhaldinu er mikilvægt að ganga frá sumaræfingagjöldum til að hægt sé að halda úti æfingum og þjálfara.
Sjá nánar á innri vef Fjölnis – NÓRA – á fjolnir.is
mbk
Sveinn Þ og Siggi G
Eyjar 2013
***** FRÍ í DAG 1. MAÍ *****
Sæl öll
Ég vil byrja á því að þakka öllum fararstjórum og foreldrum fyrir þessa ferð sem mér fannst persónulega heppnast mjög vel. Strákarnir stóðu sig mjög vel á mótinu og voru til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan.
Bæði lið stóðu sig mjög vel og hafa bætt sig mjög mikið í vetur. Þeir spiluðu góða vörn og markmennirnir okkar voru að verja mikið í leikjunum. Sóknarleikurinn gekk einnig mjög vel hjá okkur en við þurfum aðeins að vanda sendingarnar okkar betur og reyna að ná skotunum í hornin því þar er erfiðast fyrir markmennina að verja.
Ég hvet alla strákana til þess að mæta á æfingarnar sem eftir verða og bæta sig ennþá meira
Þetta video er frá föstudeginum og allir voru búnir að koma sér vel fyrir og nýttu strákarnir sér gott veður og fóru út á völl í smá handbolta.
Hér er smá video frá Fjölni 2 þar sem þeir eru að spila á móti Víkingum.
Hér eru Fjölnir 1 að keppa á móti Völsurum.
Þetta er frá kvöldvökunni þar sem keppt var í þrautabraut. Bjarki og Anton voru okkar menn að keppa á móti Víkingum sem voru síðan með besta tímann.
Þetta video er einnig frá kvöldvökunni. Þarna voru fararstjórar allra liða að keppa í kappáti, þau byrjuðu á því að borða kókosbollu, síðan einn banana og enduðu á því að drekka eina litla dós af Pepsi.
Ein hópmynd af strákunum!
Ég vil þakka ykkur strákar fyrir frábæra helgi! Þið stóðuð ykkur allir mjög vel og getið verið stoltir eftir þetta mót!
Og vonandi hafið þið jafnað ykkur fljótt eftir Herjólfsferðina!
Fjölniskveðja
Sigurður Guðjónsson
Og eitt að lokum til foreldrana að þið mættuð endilega senda okkur myndir og video ef það er hægt
FRAMHALDIÐ
Við munum æfa í þessari viku í Rimaskóla og svo færa okkur yfir í Dalhús þar sem við munum æfa í maí.
Hvet foreldra og forráðamenn til að ganga frá greiðslum fyrir maí mánuð (3x æfingar í viku) sem fyrst.
Svo er Vorhátíð deildarinnar 11. maí eins og áður hefur komið fram.
Þeir koma með 11 bátnum..
Sæl öll,
Drengirnir lögðu af stað með 8:00 bátnum til Þorlákshafnar.
Þeir eru því væntanlegir um kl. 11:00 til Þlh. Tveir af einkabílunum eru
í Landeyjum og verða þeir sóttir til að geta ferjað alla heim.
með kveðju
Sveinn Þ og Siggi G
Heimkoma í fyrramálið
Sæl öll,
Drengirnir koma líklega með kl. 8:00 ferjunni í fyrramálið – það er þó ekki öruggt.
Ekki er vitað hvort það verður frá Þorlákshöfn eða Landeyjum. Best er að hafa samband við fararstjórn til að fá að vita nýjustu stöðuna.
Drengirnir hafa staðið sig með prýði og verið flottir, – eins og þeirra er von og vísan!
mbk
Sveinn Þ
Hugsanleg heimkoma í kvöld…
Sæl öll,
Drengirnir eru að keppa í Eyjum þessa stundina.
Útlit er fyrir slæmt veður á morgun og því verður líklega siglt til Þorlákshafnar í fyrramálið.
Tveir af okkar bílum eru í Landeyjum og því er verið að skoða þann möguleika á að koma heim með bátnum kl. 17:30 í dag.
Þið fáið að vita um leið og við vitum…
Brottför kl. 10:30 – mætum tímanlega – UPPFÆRT 8:46 í morgun
Sæl öll,
VAR AÐ HRINGJA – það verður farið frá LANDEYJUM í dag.
Það lítur hins vegar ekki vel út með sunnudaginn.
ÞVÍ VÆRI SNIÐUGT að panta pláss fyrir bílinn sinn í Herjólfi og taka hann með yfir svo við
lendum ekki í því að koma til baka í Þorlákshöfn með bíla í LANDEYJUM.
ENDILEGA HRINGIÐ OG PANTIÐ stæði fyrir bíl, þið sem ætlið á bíl ef þið hafið ekki þegar gert það.
Síminn er 481-2800
Það er vissara að hafa nægan tíma.
Því ætlum við að leggja af stað kl. 10:30 og vera mætt um 10-15 mín fyrr.
Sveinn og Siggi
Ferðin og liðin
Sæl öll,
Við göngum enn út frá því að farið verði frá Landeyjahöfn. Ég mun athuga málið á morgun og hringja í Herjólf til að fá staðfestingu.
UPPFÆRT 25. apríl – Farið verður frá Landeyjum.
Því ætti að vera nóg að hittast kl. 10:30 í Dalhúsum og græja brottför þaðan.
Það eru 133 km í Landeyjar sem erum 1 klst og 45 mín í akstri.
Við ættum því að vera komin þarna rétt um kl. 12:30 og báturinn fer kl. 13:00
Það hafa allir 16 greitt
Liðin verða svona
Fjölnir 1:
Broddi
Anton
Guðbjörn
Halldór
Jón Valur
Bjarki
Kristinn
Guðmundur
Fjölnir 2:
Sigurður Ísfeld
Ólafur
Konráð
Kristján
Alexander
Andri Gylfa
Matthías
Bjarni
mbk
Sveinn og Siggi



